3D skönnun með Matterport gerir fólki kleift að skoða eignina á gagnvirkan hátt, óháð staðsetningu og tíma. Með skönnuninni myndast nákvæm þrívíddarmynd af eigninni þar sem hægt er að ganga um rýmin í gegnum tölvu, síma eða spjaldtölvu- skoða skipulag og fá skýra tilfinningu fyrir stærðum og tengingum rýma áður en komið er í sýningu.
Skönnunin sýnir eignina eins og hún er, án fegrunar eða breytinga, og styður þannig við áreiðanlega kynningu. Hún hentar sérstaklega vel fyrir stærri eignir, flókið skipulag eða þegar mikilvægt er að fólk geti skoðað eignina í rólegheitum og á eigin forsendum.
Með 3D skönnuninni fylgja einnig mælingartól sem gera kleift að mæla allar lengdir innan eignarinnar með einföldum hætti. Þetta veitir viðbótarupplýsingar sem nýtast kaupendum við skipulag.
3D skönnun er öflug viðbót við ljósmyndun, loftmyndir, teikningar og myndbönd og veitir dýpri innsýn sem hjálpar áhugasömum kaupendum að taka upplýsta ákvörðun.