Þrívíddarsviðsetning snýst um að hjálpa fólki að sjá möguleika eignarinnar og átta sig á rýmunum á skýran og raunhæfan hátt. Með stafrænni sviðsetningu er hægt að sýna hvernig rými geta verið nýtt, án þess að breyta skipulagi eða stærðum, og þannig styðja við betri skilning áður en komið er í sýningu.
Í sviðsetningu er hægt að setja inn húsgögn, gólfefni, innréttingar, lýsingu og aðra þætti sem hjálpa til við að skýra notkun rýma og heildaryfirbragð eignarinnar. Allt er unnið út frá raunverulegum forsendum eignarinnar og með hófsemi, þannig að framsetningin standist skoðun þegar komið er á staðinn. Markmiðið er ekki að fegra eða ýkja, heldur að setja hlutina í samhengi og gera fólki kleift að ímynda sér daglegt notagildi rýmanna. Allar eignir líta óumdeilanlega betur út með fallegum húsgögnum heldur en tómar.
Þrívíddarsviðsetning er sérstaklega gagnleg fyrir tómar eignir, nýbyggingar eða rými sem erfitt er að lesa án húsgagna - oft er erfitt að átta sig á stærðum á myndum þegar húsgögn vantar. Hún styður við ljósmyndun, teikningar og aðra kynningu með því að bæta við sjónrænum upplýsingum sem auðvelda fólki að taka upplýsta ákvörðun.