Myndbönd geta verið góð viðbót við ljósmyndir og gefið betri tilfinningu fyrir rýmum og flæði eignar.
Við bjóðum upp á hefðbundin myndbönd þar sem gengið er í gegnum eignina og rýmin sýnd í samhengi, bæði innan- og utanhúss. Slík myndbönd henta vel til að sýna skipulag, tengingu rýma og hvernig eignin nýtist í heild.
Einnig bjóðum við upp á nýjung þar sem myndbönd eru unnin út frá ljósmyndum sem teknar eru af eigninni. Í þeim tilfellum er bætt við dýpt og hreyfingu í myndirnar á annan hátt en með hefðbundnu súmmi eða einföldum hliðarhreyfingum. Útkoman er rólegt og flæðandi myndband sem byggir á sömu framsetningu og ljósmyndirnar. Þessi myndbönd eru oft bjartari og með jafnari litum, auk þess sem þau eru hagkvæmari kostur.
Myndböndin eru hugsuð sem stuðningur við kynningu eignarinnar og veita áhorfendum betri yfirsýn áður en komið er á staðinn, án þess að breyta eða ýkja það sem er verið að sýna.
Myndönd henta einstaklega vel til notkunar á samfélagsmiðlum.