Sveitarfélög standa frammi fyrir sífellt meiri kröfum um skýra, aðgengilega og faglega miðlun upplýsinga – bæði til núverandi og verðandi íbúa ásamt utanaðkomandi aðila. Vel unnið myndefni gegnir þar lykilhlutverki.
Við sérhæfum okkur í framleiðslu á hágæða ljósmyndum og myndböndum sem sýna sveitarfélög á aðlaðandi hátt. Áherslan er á að fanga raunverulegt umhverfi, mannlíf og innviði með framsetningu sem endurspeglar karakter hvers staðar.
Hvað felst í þjónustunni
Kynningarmyndbönd Stutt og áhrifarík myndbönd sem draga fram styrkleika sveitarfélagsins – hvort sem um er að ræða búsetu, þjónustu, menningu eða atvinnulíf.
Ljósmyndun fyrir vef og útgáfu Myndir af byggingum, skólum, íþróttamannvirkjum, opinberum rýmum, þjónustu, verslun og umhverfi sem nýtast í kynningarefni, á vef og í samfélagsmiðlum.
Loftmyndir og yfirlit Drónamyndir sem setja svæði í samhengi og gefa skýra heildarsýn á uppbyggingu, staðsetningu og umhverfi.
Myndefni fyrir markaðssetningu og ráðningar Efni sem styður við ímynd sveitarfélagsins sem eftirsóknarverðs búsetu- og vinnustaðar.
Ljósmyndir
Hér má sjá dæmi úr verkefnum sem við höfum unnið fyrir sveitarfélög og opinbera aðila. Verkefnin eru fjölbreytt, en markmiðið er alltaf það sama: að sýna umhverfi, starfsemi og mannlíf á heiðarlegan og aðlaðandi hátt.
Við vinnum með sveitarfélögum að kynningarefni þar sem byggð, þjónusta og daglegt líf fá að njóta sín. Slíkt efni nýtist vel á vef, í kynningum og í markaðsstarfi sem á að miðla skýrri og trúverðugri mynd af staðnum
Kynningarmyndbönd
Kynningarmyndbönd eru áhrifarík leið til að miðla stemningu, umhverfi og starfsemi á skýran og lifandi hátt þar sem byggð, mannlíf og þjónusta fá að njóta sín í eðlilegu samhengi.
Myndefnið nýtist vel á vef, í kynningum og í markaðsstarfi þar sem markmiðið er að segja sögu og skapa tengingu.
3D skönnun
3D skönnun gefur nákvæma og gagnvirka mynd af rýmum þar sem notandi getur gengið um á eigin forsendum. Slík framsetning gerir gestum kleift að átta sig á aðstæðum, skipulagi og upplifun áður en þeir mæta á staðinn.
Við vinnum 3D skannanir fyrir söfn, bæjarskrifstofur, sundlaugar og önnur opinber rými þar sem aðgengi og skýr miðlun skiptir máli. Efnið nýtist vel á vef sveitarfélaga, í kynningum og ekki síst
Þegar efnið er tengt við Google Maps birtist sýndarferðin beint í leit, sem eykur sýnileika og gerir ferðamönnum kleift að skoða staðinn áður en þeir ákveða heimsókn.
Reynslan sýnir að slíkt efni eykur líkur á heimsóknum, lengir tíma sem fólk eyðir í að skoða staðinn á netinu og styrkir ímynd hans sem aðgengilegs og vel kynnts áfangastaðar.
Hér má sjá örfá dæmi þar sem við höfum unnið fyrir leigufélög, sveitarfélög og fyrirtæki í öllum geirum.
Sögur af leigutökum
Eik setur reglulega "Sögur af leigutökum" á vefsíðuna sína og við förum þá á staðinn og myndum fólk og húsnæðið sjálft. Hér má sjá nokkur dæmi um þessar heimsóknir.
Glæsilegt hús á tveim hæðum á Suðurlandinu. Vorum fengin til að vinna fullt markaðsefni sem innihélt ljósmyndir, loftmyndir og myndbönd sem henta bæði fyrir stóra skjái og samfélagsmiðlana