Skip to main content

Fasteignaljósmyndun


Ljósmyndun fyrir sölu snýst um að sýna eignina á einfaldan, skýran og heiðarlegan hátt — í sínu besta ljósi. Myndirnar eiga að hjálpa fólki að fá raunhæfa tilfinningu fyrir rýmunum, skipulaginu og tengingu þeirra áður en komið er í sýningu.

Myndir eru oftast fyrstu kynni fólks af eign og því skiptir máli að þær gefi góða og áreiðanlega yfirsýn. Mikilvægt er að velja rétt sjónarhorn miðað við rými og húsgögn, sýna flæði milli rýma og forðast að ýkja með of mikilli vídd eða ósanngjarnri framsetningu. Markmiðið er að eignin njóti sín á eðlilegan hátt og að myndirnar standist væntingar þegar komið er á staðinn.

Mikilvægt er að hafa í huga að myndataka og sýning eignar eru ekki það sama. Það sem virkar vel þegar fólk er á staðnum getur komið allt öðruvísi út á myndum.

Til dæmis geta hlutir eins og hangandi handklæði, föt, viskustykki eða svuntur litið eðlilega út í daglegu lífi, en truflað heildarmynd á ljósmyndum. Sama á við um stóla og húsgögn — stundum er þeim raðað eða færð lítillega til fyrir myndatökuna til að opna rýmið og sýna það betur, þó það sé ekki nákvæmlega eins og það er notað dags daglega.

Ljósmyndir einfalda rými og taka burt dýpt og upplifun sem fólk finnur þegar það er á staðnum. Því geta smáatriði sem virka vel í daglegu lífi orðið meira áberandi og truflað heildarmyndina.

Markmiðið er ekki að breyta eigninni, heldur að sýna hana skýrt, hreint og á þann hátt sem nýtist best í myndformi, án þess að það dragi úr raunhæfri upplifun þegar komið er á staðinn.

Undirbúningur eignarinnar fyrir myndatöku skiptir því miklu máli. Vel undirbúin eign nýtur sín betur á myndum, vekur sterkari fyrstu sýn og styður við betri framsetningu á markaði.

UNDIRBÚNINGUR

Með því að fylgja þessum leiðbeiningum næst bestur árangur úr myndatökunni.

Fyrst þarf að ákveða hvaða rými á að mynda. Mikilvægustu rýmin eru yfirleitt stofa, eldhús, baðherbergi og hjónaherbergi. Bílskúrar og þvottahús eru sjaldnar mynduð nema þau séu snyrtileg, rúmgóð eða með vandaðar innréttingar.

Mikilvægt er að undirbúningi sé að mestu lokið áður en myndatakan hefst. Ef mikið er verið að færa hluti á meðan tökur standa yfir getur það truflað flæði myndatökunnar og gert erfiðara að ná að sýna tengingu rýma og heildaryfirsýn eignarinnar. Markmiðið er ekki að flýta tökunni, heldur að nýta tímann vel til að ná sem bestum myndum.

Oft er gott að nýta þvottahús, geymslu eða jafnvel bílskúr undir það sem ekki á að sjást á myndum. Ef það er ekki mögulegt getur verið sniðugt að velja eitt herbergi fyrir slíka hluti og mynda það rými síðast.

Almennt

  • Skoðið lýsingu rýmisins. Dragið frá gardínur og hleypið inn eins mikilli náttúrulegri birtu og mögulegt er. Kveikið á öllum ljósum og lömpum.
  • Stakar mottur, sérstaklega á göngum eða í minni rýmum, geta látið rými virka minni á myndum og er því oft best að fjarlægja þær. Mottur undir borðum eða við sófa falla þó oftast að rýminu.
  • Fækkið eða fjarlægið flíkur úr fatahengi í forstofu og fjarlægið lausa skó. Vel raðaðir skór í hillu eru þó í lagi.
  • Fjarlægið óþarfa hluti af gólfum, svo sem gæludýrarúm, búr, vatnsskálar, leikföng, ruslafötur og annað slíkt.
  • Hafið slökkt á tölvuskjám og loftviftum.
  • Reynið að fela rafmagnssnúrur sem liggja að tækjum, lömpum eða ljósum.

Eldhús

  • Fjarlægið allt af ísskápshurð, svo sem segla, myndir og minnisblöð.
  • Best er að hafa eldhúsbekki sem hreinasta. Í lagi er þó að hafa einn til tvo snyrtilega hluti, til dæmis kaffivél eða hrærivél.
  • Fjarlægið uppþvottaefni, uppþvottabursta, þurrkgrindur, viskustykki og eldhúsrúllur.
  • Strjúkið af ofni, ísskápi og öðrum gljáflötum.
  • Fjarlægið hluti ofan af skápum.
  • Raðið stólum snyrtilega við borð.

Baðherbergi

  • Fjarlægið vörur eins og sjampóbrúsa, tannbursta, rakvélar, hárblásara og aðra smáhluti af skápum, baði og sturtu.
  • Einn til tveir fallegir hlutir, til dæmis ilmvatnsglös eða kerti, geta þó lífgað upp á rýmið.
  • Þrífið spegla vel.
  • Dragið sturtuhengi frá ef það er til staðar. Í sumum tilvikum er jafnvel betra að fjarlægja það tímabundið.
  • Best er að fjarlægja handklæði sem hanga uppi eða eru á handklæðaofnum. Fallega samanbrotin handklæði á vaskaborði eða hengi geta þó komið vel út.
  • Fjarlægið salernisbursta og ruslatunnu og setjið nýja rúllu af salernispappír.
  • Hafið salernissetu lokaða.

Svefnherbergi

  • Hafið helst rúmteppi á rúmi en ef það er ekki til þá samstæð rúmföt.
  • Fjarlægið allt af náttborðum nema þá eina bók eða lampa ef hann er til staðar.
  • Fjarlægið föt af snögum og fatahengi.
  • Takið dót ofan af skápum
  • Lokið öllum skápum.
  • Hafið kveikt á lömpum.

Stofa/Borðsstofa

  • Stundum getur hjálpað að fækka stólum eða öðrum húsgögnum til að opna rýmið betur. Ljósmyndarinn kemur með ábendingar ef slíkt hjálpar og færir til ef með þarf.
  • Ef arinn er til staðar getur verið fallegt að kveikja upp í honum rétt áður en ljósmyndarinn kemur.
  • Takið fjarstýringar úr augsýn og slökkvið á sjónvarpi.
  • Raðið stólum snyrtilega. Góð regla er að hafa ekki stól með háu baki við enda borðs, þar sem það getur lokað rýminu á mynd.
  • Gangið frá púðum. Yfirleitt kemur best út að hafa fáa og snyrtilega raðaða púða í sófa.

Utandyra

  • Takið til í garði, innkeyrslu og við aðkomu. Fjarlægið óþarfa hluti eins og leikföng, hjól og garðverkfæri.
  • Rúllið upp slöngum og raðið garðhúsgögnum snyrtilega.
  • Sláið garðinn að sumri til. Að vetri til er gott að moka aðkomu hússins ef snjór er til staðar.
  • Færið bíla og annað færanlegt úr innkeyrslu þannig að húsið sjáist óhindrað.
  • Færið lausar ruslatunnur ef þær standa framan við hús.

Einbýli í Mosfellsbæ

Vignir Már Garðarsson

Hér má sjá dæmi um myndir þar sem við mynduðum einbýlishús til sölu í Mosfellsbæ. Þarna var einstakt útsýni á miðað við hús á einni hæð og var verkefnið því að koma því til skila.