Skip to main content

Teikningar


Það að geta séð skipulag og herbergjaskipan eignarinnar er ótvíræður kostur fyrir kaupendur. Þó ljósmyndari reyni að sýna hvernig eignin liggur á ljósmyndum þá er oft erfitt fyrir þann sem hefur ekki komið í eignina að sjá hvernig skipulag er í raun.

Við bjóðum upp á endurteiknaðar 2D teikningar sem hreinsa út óþarfa smáatriði og leggja áherslu á skipulag, rými og tengingar innan eignarinnar. Markmiðið er að gera teikningarnar læsilegar og auðskiljanlegar. Eins er oft sem breytingar/viðbætur hafa átt sér stað. Þar má nefna breytingu á herbergjaskipan, ef pallur hefur verið byggður þá er honum bætt við o.s.frv. Teikningar sem sækja má á vef sveitarfélagana eru þar að auki oft óskýrar og búið að breyta innra skipulagi svo þær sýna oft ekki rétta mynd af eigninni. 

Einnig gerum við 3D teikningar af ytra byrði/útliti húsa.

Hægt er að sækja upprunalegar teikningar á vef sveitarfélaganna:

Seltjarnarnes

Hægt er að senda beiðni um afrit teikninga og gagna á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

3D utanhúss teikningar

Við umbreytum hefðbundnum grunnteikningum í nákvæmar og raunverulegar 3D utanhússmyndir sem sýna eignina eins og hún mun líta út í raun. Markmiðið er að gera arkitektúrinn skýran, hlutföll rétt og efnisval sannfærandi – þannig að kaupendur, fjárfestar eða verkkaupar sjái strax heildarmyndina.

Við vinnum náið með arkitektum, verktökum og fasteignasölum að því að tryggja að útfærslan sé í fullu samræmi við teikningar og raunverulegar forsendur. Hlutföll, gluggar,, hurðar og annað efni eru unnin af nákvæmni svo framsetningin sé bæði fagleg og trúverðug.

3D utanhússmyndir henta sérstaklega vel í kynningarefni, á vefsíður, í söluferli og í markaðssetningu verkefna sem eru í hönnun eða uppbyggingu. Hér að neðan má sjá einfalda svart/hvíta teikningu sem breytt var í 3D módel.