Skip to main content

markaðsefni fyrir hótel og gistiheimili

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Með vandaðri markaðssetningu aðstoðum við hótel, gistiheimili og aðra ferðaþjónustuaðila að vekja athygli á sér í aukinni samkeppni. Frá 2008 höfum við myndað fyrir ótal aðila í ferðaþjónustunni. Hér að neðan má finna dæmi þar um.

  • Ljósmyndir
  • Kynningarmyndbönd
  • Teikningar
  • Efni fyrir samfélagsmiðla
  • Auglýsingaefni
  • 3D "walkthrough"

Og margt fleira...

Góð markaðssetning skiptir sköpum þegar kemur að fyrstu sýn. Vandaðar ljósmyndir, myndbönd og 3D-lausnir auka athygli sem skilar sér í auknum bókunum.

Sterkt myndefni er lykillinn að árangri í ferðaþjónustu. Ljósmyndir og myndbönd hjálpa hótelum og gististöðum að skera sig úr, byggja upp traust og auka bókanir með skýrri og aðlaðandi framsetningu.

Markaðslausnir

Við höfum sett saman tillögur að markaðspökkum fyrir hótel, byggðar á reynslu okkar af myndefnisgerð og markaðsþörfum í ferðaþjónustu. Pakkarnir eru hugsaðir sem leiðbeinandi uppsetning sem einfaldar ákvarðanatöku og gefur skýra mynd af umfangi og möguleikum.

Það er þó mikilvægt að undirstrika að um tillögur er að ræða — ekki fasta ramma. Hægt er að sérsníða hvern pakka að þörfum viðkomandi hótels, bæta við þjónustuþáttum, fækka liðum eða breyta umfangi verkefnisins. Í kjölfarið er unnið tilboð miðað við þá samsetningu sem hentar best hverju sinni.


Grunnlausn
Grunnefni – fyrir vef og bókunarsíður
  • Ljósmyndun allra herbergistegunda
  • Ljósmyndun sameiginlegra rýma
  • Útisvæði
  • Veitingastaður/Spa/Lobbý
  • Ytra byrði húss
  • Loftmyndir sem sýna staðsetningu og umhverfi
  • Myndvinnsla
  • Afhending í vef- og prentupplausn
Markaðs- og samfélagsmiðlalausn
Hönnuð til að auka sýnileika á Instagram, Facebook, TikTok og bókunarsíðum.
  • Kynningarmyndband. (30–60 sek)
  • Myndband sem sýnir klippur úr herbergjum (30–60 sek)
  • 3–5 stutt myndbönd: 8–12 sekúndna klippur sem eru sérsniðnar fyrir reels/story. 
  • Samfélagsmiðla "crop" pakki sem er sérsniðin í 4:5, 1:1 og 9:16 útgáfur.
  • Valdar forsíðumyndir fyrir booking.com / Expedia / Airbnb.
  • 2D teikningar af herbergistegundum.
  • 3D teikningar af herbergistegundum.
Heildarlausn
Fullbúinn kynningarpakki.

Allt úr Staðalpakka
Allt úr Markaðs- og samfélagsmiðlapakka

  • Twilight (kvöldbirtu) myndataka að utan
  • Lifandi myndir - Fólk í spa/við bar/veitingastað/lobbý o.s.frv. (Fyrirfram skipulagt og ætlað til að gera hótelið "lifandi")
  • Myndir af morgunverði/mat af veitingastað
  • 3D skönnun á herbergjum/aðstöðu
  • Sameinað afhendingarsafn tilbúið fyrir markaðsteymi.

Hér fyrir neðan eru dæmi um ólíkar leiðir í markaðssetningu fyrir hótel og ferðaþjónustu. Verkefnin eru unnin með það í huga að myndefnið nýtist sem best í daglegum rekstri – á heimasíðu, bókunarsíðum og samfélagsmiðlum.

Við vinnum náið með rekstraraðilum að því að skapa efni sem passar við staðinn og styður við sýnileika hans.

3D Hótel

Með Matterport 3D-sýningu er hægt að skoða Junior Suite á Hótel Geysir og 6.hæð á City center hotel á einfaldan hátt. Gestir fá skýra mynd af skipulagi, stærð og tengslum rýma áður en þeir bóka.

Sýningin sýnir herbergið eins og það er í raun, með réttu sjónarhorni og hlutföllum. Þetta dregur úr óvissu, byggir upp traust og hjálpar gestum að taka upplýsta ákvörðun.

Hótel Geysir

City Center Hotel

Kynningarmyndbönd

Hér má sjá brot úr kynningarmyndbandi sem var unnið til kynningar á húsi sem er leigt út til ferðamanna. Ekki er um að ræða myndbandið sjálft heldur smá útdrátt til að sýna möguleikann og hvaða vinnu við skilum.

ljósmyndir

Hér fyrir neðan má sjá dæmi úr verkefnum sem við höfum unnið fyrir hótel og gistiheimili. Áherslan er á að myndefnið endurspegli stemningu, gæði og þá upplifun sem gestir finna þegar þeir ganga inn í rýmið.

Við vinnum með náttúrulegt ljós og vandaða framsetningu þannig að herbergi og sameiginleg svæði njóti sín á skýran og trúverðugan hátt — myndefni sem styður við sterka ímynd og auknar bókanir á vef og bókunarsíðum.

Þrívíddarsýn á herbergi

Þar sem hótelherbergi eru endurgerð í nákvæmri þrívídd með raunverulegum hlutföllum, efnisvali og lýsingu.  Framsetningin er unnin út frá teikningum og ljósmyndum og sýnir herbergið í heild og tengsl á milli rýma.  Markmiðið er að sýna herbergið eins og það er, sem nákvæma sjónræna framsetningu á skipulagi, tengingum milli rýma og heildarupplifun.


Hótel Grímsborgir

Vignir Már Garðarsson

Eitt af fyrstu 5 stjörnu hótelum á Íslandi. Hótelið er staðsett í Grímsnesi við Gullna hringinn, umlukið kjarri vöxnu landslagi á bökkum Sogsins, með stórbrotna fjallasýn í allar áttir. Tekið í tveimur heimsóknum og einstaklega skemmtilegt verkefni.

Veiðihús - Six Rivers

Verkefni unnið á austurlandi fyrir Six Rivers. Þar höfum við  myndað t.d Miðfjarðará og Selá. 

Sveitasetur á suðurlandi

Glæsilegt hús á tveim hæðum á Suðurlandinu. Vorum fengin til að vinna fullt markaðsefni sem innihélt ljósmyndir, loftmyndir og myndbönd sem henta bæði fyrir stóra skjái og samfélagsmiðlana

Candlewood by IHG

Vorum fengin í að mynda nýtt hótel í miðbæ Reykjavíkur - Hér þurfi að fara eftir ströngum stöðlum við myndatöku sem IHG setur.

hafðu samband

  • Vignir Már Garðarsson
  • Fasteignaljósmyndari og eigandi